Einsdæmi að ráðist sé á kirkju við guðsþjónustu Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. október 2010 17:26 Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur segir að það sé einsdæmi að friður sé rofinn við guðsþjónustu. Mynd/ Hari.
Það er einsdæmi í sögunni að friður sé rofinn við guðsþjónustu, eins og gerðist í dag, segir Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur í samtali við Vísi. Alþingi var sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni í dag. Fjölmenn og hávær mótmæli voru á Austurvelli á meðan og tvær rúður í kirkjunni voru brotnar. „Það hefur aldrei gerst í sögunni að ráðist hafi verið að kirkju undir guðsþjónustu, hér á landi og mér er til efs að það hafi gerst í nágrannalöndunum heldur," segir Hjálmar. Hann segir að sendimenn erlendra ríkja, sem viðstaddir voru, hafi einnig minnst á að þetta væri einsdæmi. Hjálmar segir það fámennan hóp sem gangi svo langt að ráðast að kirkjunni. Hjálmar segist á hinn bóginn verða var við það í sínu starfi að margt fólk sé orðið afar þreytt á því ástandi sem hér hefur ríkt og sumstaðar sé örvænting. „Ég tel mig skynja það vel og hef einnig bein dæmi um það undanfarið að fólk er komið að niðurlotum. Það koma fréttir um 9,5 milljarða króna hagnað eins af bönkunum fyrri hluta ársins, en á sama tíma er fólk að missa aleigu sína vegna þess að sami banki gengur hart fram í innheimtunni. Fólk stendur uppi á miðjum aldri eða jafnvel hætt störfum og eftir ævistarfið er ekkert eftir. Það er ekkert óeðlilegt að fólk verði örvæntingarfullt. Þessu höfum við verið að fylgjast með undanfarið. Fólk kemur til mín í þessari aðstöðu og það er erfitt að hafa engin svör," segir Hjálmar. Í því sé þetta tákn, þessi skilaboð frá fólki að henda lyklum í kirkjuna og þinghúsið. Fólk sé búið að missa húsið eða bílinn. Hjálmar segir að Alþingis bíði nú það hlutverk að leysa úr hinum erfiðustu málum. „Verkefni alþingismanna er að finna þær lausnir og þær leiðir sem duga. Það þýðir ekki að segja fólki að vera rólegt þegar það er á barmi gjaldþrots eða komið í gjaldþrot. Þegar framtíðarsýnin er engin þá þýðir ekkert að segja að þetta lagist með tímanum," segir Hjálmar.
Mest lesið Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent Fleiri fréttir Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Sjá meira