Innlent

Dæmdir fyrir umfangsmikla kannabisræktun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan upprætir kannabisverksmiðju. Mynd/ Stefán.
Lögreglan upprætir kannabisverksmiðju. Mynd/ Stefán.
Tveir 24 ára gamlir karlmenn hafa verið dæmdir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir umfangsmikla kannabisræktun í íbúð í Engihjalla í Kópavogi í mars í fyrra.

Í íbúðinni fundust 503 kannabisplöntur og 50 grömm af kannabislaufum. Annar karlmaðurinn var dæmdur í níu mánaða fangelsi en hinn var dæmdur í fimm mánuði. Sá sem hlaut lengri dóminn var á skilorði sem að hann rauf með brotinu.

Báðir hafa mennirnir ítrekað komið við sögu lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×