Innlent

Stál í stál vegna launakröfu

Boeing 777 í skoðun Flugvirkjar á Íslandi eru fámenn stétt en með þeim standa og falla flugsamgöngur.
Boeing 777 í skoðun Flugvirkjar á Íslandi eru fámenn stétt en með þeim standa og falla flugsamgöngur.

Flugvirkjafélag Íslands hefur boðað verkfall frá og með mánudeginum sem mun hafa áhrif á ferðir tuttugu þúsund farþega ef af verður. Samningaviðræður standa yfir en flugfélagið treystir sér ekki til að verða við kröfu flugvirkja um 25 prósent launahækkun.

Guðjón Arngrímsson segir Icelandair hafa boðið flugvirkjum sambærilegar kjarabætur og öðrum, en útilokað sé að ganga að ítrustu launakröfum þeirra sem séu langt umfram hækkanir annarra hópa.

„Það eru Icelandair mikil vonbrigði að forsvarsmenn flugvirkja hafi ekki sýnt þessu skilning,“ segir Guðjón. Kristján Kristinsson, formaður samninganefndar flugvirkja, segir launakröfu flugvirkja einfaldlega leiðréttingu á þeirri kjaraskerðingu sem þeir hafa orðið fyrir á stuttum tíma.

Hann segir að nokkuð hafi þokast í samningaviðræðum í gær en ljóst að launakrafan nái ekki fram að ganga eins og hún var sett fram. Kristján segir flugvirkja gera sér fulla grein fyrir því hvað verkfall þýði fyrir fjölda fólks. Hann bendir hins vegar á að lítið sem ekkert hafi hreyfst í samningaviðræðum við Icelandair fyrr en verkfall var boðað.

Kristján bendir á að launakostnaður Icelandair við tæknideildina, sem flugvirkjar starfa við, hafi farið hraðminnkandi vegna gengisfellingar krónunnar. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×