Innlent

Keflavík besta flugstöð í Evrópu

Óli Tynes skrifar

Flugstöð Leifs Eiríkssonar var valin besta flugstöð í Evrópu árið 2009 í könnun alþjóðasamtaka flugstöðva sem nú hefur verið birt.

Þar á eftir komu flugstöðvarnar í Zurich í Sviss, Porto í Portúgal, Valetta á Möltu og Southhampton í Bretlandi.

Besta flugstöð í heimi fimmta árið í röð var Incheon í Suður-Kóreu.

Í greinargerð með niðurstöðunum sagði að á öllum þessum flugstöðvum hafi stjórnendur sýnt að þeir skilji fullkomlega að það sem farþegum líki vel  í dag sé það sem ætlast sé til á morgun.

Til þess að halda sér á toppnum þurfi stöðugt að þróa  og brydda upp á nýjungum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×