Innlent

Má búast við jarðskjálftavirkni næstu daga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jarðskjálfti upp á 4 á Richter mældist suðvestur af Reykjanesi í nótt. Mynd/ Veðurstofan.
Jarðskjálfti upp á 4 á Richter mældist suðvestur af Reykjanesi í nótt. Mynd/ Veðurstofan.
Búast má við jarðskjálftavirkni suðvestur af Reykjaneshrygg næstu daga, segir jarðskjálftasérfræðingur á Veðurstofunni.

Fjöldi skjálfta mældist þar í nótt. Að minnsta kosti fimm skjálftar mældust yfir 3 á Richter. Sá sem var stærstur var 4 á Richter. Upptök hans voru 11,6 kílómetrum norðvestur af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg.

Jarðskjálftasérfræðingur á Veðurstofunni segir að virknin virðist hafa fjarað út í dag, en býst við að fleiri skjálftar mælist á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×