Innlent

Hyggjast sitja frítt í nefndinni

Álftanes
Fjárhagsvandræði leika sveitarfélagið grátt.
Álftanes Fjárhagsvandræði leika sveitarfélagið grátt.

„Núverandi nefndarmenn afsala sér launagreiðslum vegna fundasetu í tónlistarskólanefnd frá og með 46. fundi og út kjörtímabilið,“ segir í bókun Karólínu Eiríksdóttur, Hjördísar Árnadóttur, Ingibjargar Guðjónsdóttur, Skarphéðins Jónssonar og Sveinbjargar Vilhjálmsdóttur sem öll sitja í tónlistarskóla Álftaness.

Á síðasta fundi sínum ræddi tónlistarskólanefndin áskorun frá Foreldra- og velunnarafélagi Tónlistarskóla Álftaness og lýstu nefndarmenn áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×