Innlent

Telur vegið að jafnræði landsmanna

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Bæjarstjórn Hveragerðis segir sjúkrastofnunina eiga að spara 130 milljónir í ár ofan á niðurskurðarkröfur sem mætt hafi verið í fyrra.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Bæjarstjórn Hveragerðis segir sjúkrastofnunina eiga að spara 130 milljónir í ár ofan á niðurskurðarkröfur sem mætt hafi verið í fyrra.

Bæjarstjórn Hveragerðis kveðst hafa miklar áhyggjur af 130 milljóna króna viðbótarniðurskurði á framlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

„Er það alveg ljóst að slíkur niðurskurður kemur til með að hafa gríðarleg áhrif á þjónustu við íbúa svæðisins,“ segir bæjarstjórnin sem fullyrðir að ekki hafi verið með óyggjandi hætti hægt að sýna fram á hagræðingu niðurskurðarins. Meðal annars hafi þurft að leggja af vaktir fæðingar- og svæfingarlækna, draga úr umsvifum sjúkraflutninga og loka heilsugæslustöðvum á Eyrarbakka og Stokkseyri.

„Með tilflutningi á þjónustu til höfuðborgarsvæðisins er ekki einungis verið að skerða þjónustu við íbúa heldur einnig að auka kostnaðarhlutdeild þeirra,“ segja Hvergerðingar.

Þá segir bæjarstjórnin að gæta þurfi þess að íbúar á landsbyggðinni sitji við sama borð og höfuðborgarbúar þegar komi að öryggi og kostnaði við heilbrigðisþjónustu.

„Ljóst er að með ofangreindum niðurskurði er verulega vegið að jafnræði landsmanna, ekki síst Sunnlendinga sem þurfa um fjallveg að fara þegar allra veðra er von,“ segir bæjarstjórnin sem þakkar stjórnendum og starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands „þá þrautseigju og þá útsjónarsemi sem það hefur sýnt við erfiðar aðstæður“. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×