Starf lögreglumanna verði metið að verðleikum 18. febrúar 2010 13:32
Stjórn Landssambands lögreglumanna harmar þá stöðu sem er í kjaraviðræðum lögreglumanna við ríkisvaldið. Í ályktun sem stjórnin samþykkti á dögunum segir að nú sé svo komið að lögreglumenn hafi verið með lausa kjarasamninga frá því 31. maí 2009 og eru viðræður um nýjan kjarasamning inni á borði Ríkissáttasemjara. „Stjórn LL er fullljóst það ástand sem við blasir í efnahagsmálum þjóðarinnar og sú þrönga staða sem ríkisfjármálin eru í. Því er þó rétt að halda til haga hér að lögreglumenn fengu á sig gríðarlegar launalækkanir „korteri" fyrir gerð kjarasamninga s.l. sumar, sem unnir voru undir merkjum „Stöðugleikasáttmála". Ríkisvaldinu mátti því vera það ljóst að þeir samningar, sem þá voru gerðir fengju dræmar undirtektir félagsmanna LL enda var það raunin að samningarnir voru felldir af yfir 90% félagsmanna LL," segir einnig. Þá er bent á að lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt, eru með auknar skyldur er kemur að yfirvinnu og viðveru á vinnustað eftir ákvörðun forstöðumanna stofnana „auk þess að vera ofurseldir miklum skerðingum á sínum frítíma er kemur t.d. að bakvöktum, sbr. nýlega genginn dóm Félagsdóms þar um." Þá geta lögreglumenn ekki ráðið sig til annarra launaðra starfa í sínum frítíma, líkt og aðrir þegnar þessa þjóðfélags, nema með sérstöku og skriflegu leyfi sinna yfirmanna. „Af fréttum undanfarinna vikna er það ljóst að þær stéttir sem hafa verkfallsrétt og hóta að beita honum njóta forgangs er kemur að frágangi kjarasamninga á meðan lögreglumenn sitja á hakanum. Verkfallsréttur virðist því vera orðin forsenda fyrir því að stéttarfélög fá gerða við sig ásættanlega kjarasamninga," segir einnig. Því krefjast lögreglumenn þess að þær takmarkanir sem þeim eru settar með sinn frítíma og auknar skyldur verði metið að fullu til launa og að auki sú ábyrgð, hæfni og áhætta sem starf lögreglumanns krefst. Þetta á að mati lögreglumanna að endurspeglast í launakjörum lögreglumanna „en þannig er því aldeilis ekki farið í dag."
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira