Innlent

Slæmt veðurútlit á Hellisheiði

Vegna slæms veðurútlits á Hellisheiði og Þrengslum næstu klukkutíma biður Vegagerðin vegfarendur um að leita sér upplýsinga áður en lagt er af stað. Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Suðurlandi en hálka og skafrenningur á Hellisheiði og snjóþekja og snjókoma í Þrengslum.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að á Vesturlandi er nokkur skafrenningur. Fróðárheiði er ófær en hálka er á Vatnaleið og milli Stykkishólms og Ólafsvíkur. Ekki er þjónusta í dag á vegum norðan Búðardals, hvorki vestur Barðastrandarsýslu né norður á Strandir.

Svínadalurinn er þungfær og ófært er í Reykhólasveit og á Þröskuldum. Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúpi og á Ströndum en Steingrímsfjarðarheiði er þungfær.

Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og í Húnavatnssýslum, hálka á Vatnsskarði og á köflum í Skagafirði. Þverárfjall er þungfært.

Snjóþekja eða hálka er frá Öxnadalsheiði austur á Tjörnes og Mývatn.

Þæfingsfærð er á Mývatnsöræfum en með norðausturströndinni er ófært í Öxarfirði og fyrir Melrakkasléttu, og þungfært á Hálsum og Brekknaheiði. Á þessu svæði eru vegir ekki hreinsaðir á laugardögum.

Á Austurlandi er ýmist snjóþekja eða hálka. Éljagangur er með suðausturströndinni og víðast snjóþekja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×