Innlent

Marteinn sigraði í Mosfellsbæ

Marteinn Magnússon, bæjarfulltrúi, fékk 68,7% atkvæða í 1. sæti í prófkjöri framsóknarfélaganna í Mosfellsbæ í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn efnir til prófkjörs í bæjarfélaginu.

Tíu gáfu kost á sér. Röð efstu sex var sem hér segir:

1. Marteinn Magnússon með 68,7% greiddra atkvæða í 1. sæti

2. Bryndís Bjarnarson með 55,7% greiddra atkvæða í 1.-2. sæti

3. Snorri Hreggviðsson með 42,6% greiddra atkvæða í 1.-3. sæti

4. Björg Reehaug Jensdóttir með 32,2% greiddra atkvæða í 1.-4. sæti

5. Linda Björk Stefánsdóttir með 41,7% greiddra atkvæða í 1.-5. sæti

6. Sveinbjörn Ottesen með 48,7% greiddra atkvæða í 1.-6. sæti

Framsóknarflokkurinn fékk einn bæjarfulltrúa kjörinn í kosningunum 2006, Sjálfstæðisflokkur þrjá, Samfylkingin tvo og VG einn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×