Rannsaka síðustu daga Sigurplasts 12. október 2010 05:00 Fyrri eigendur Sigurplasts eru grunaðir um að hafa fjarlægt bókhaldsgögn og hlunnfarið hluthafa. Sautján starfa hjá félaginu. Fréttablaðið/stefán
Grunur leikur á að gögn hafi verið fjarlægð úr bókhaldi iðnfyrirtækisins Sigurplasts í Mosfellsbæ þegar fyrri eigendur fóru frá og áður en nýr framkvæmdastjóri á vegum Arion banka tók við því fyrir um hálfum mánuði. Þá hefur tölvukerfi fyrirtækisins legið niðri frá sama tíma. Ekki er vitað hvað var gert við það, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Fyrri eigendur Sigurplasts tóku við rekstrinum fyrir þremur árum en óskuðu eftir gjaldþrotaskiptum fyrir um hálfum mánuði. Sigurplast tapaði tæpum 567 milljónum króna árið 2008 og var eigið fé þá neikvætt um 528,6 milljónir. Á sama tíma námu skuldir rúmum einum milljarði. Nýrri ársreikningur liggur ekki fyrir. Fjárhagsleg endurskipulagning hafði staðið yfir um nokkurt skeið þegar upp úr slitnaði. Fram kom í kjölfar gjaldþrotaskipta að Sigurplast hefði ekki ráðið við afborganir af gengistryggðum lánum í kjölfar gengishruns. Af síðasta ársreikningi má álykta að gengisfallið hafi ekki eitt og sér ýtt fyrirtækinu í þrot; nýjar lántökur hafi haft sitt að segja. Fréttastofa RÚV sagði Arion banka hafa kært fyrri eigendur vegna gruns um misnotkun á fyrirtækinu í aðdraganda gjaldþrotaskipta. Á meðal þess sem liggur undir er tilfærsla á innflutningi frá Sigurplasti í annað félag sem Sigurður L. Sævarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sigurplasts, stofnaði í fyrra. Efnahagsbrotadeild lögreglunnar hefur tekið skýrslu af starfsfólki Sigurplasts í tengslum við rannsóknina. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við segja Sigurð ekki hafa komið til starfa hjá Sigurplasti í allt að tvo mánuði fyrir gjaldþrotaskipti. Þegar skiptastjóri tók svo við rekstri Sigurplasts ásamt nýjum framkvæmdastjóra voru bókhaldsgögn horfin. Skiptastjóri leitaði til fyrri eigenda og fékk þau svör að þeir hefðu ekki talið þau örugg. Hann er nú kominn með þau í hendur. „Ég ætla ekki að leggja mat á það hvort þetta var eðlilegt eða ekki,“ segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri Sigurplasts. Viðskiptasaga Sigurplasts í aðdraganda gjaldþrotaskipta er nú til rannsóknar. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira