Innlent

Kyrrsetning er ekki frysting

Steinunn Guðbjartsdóttir segir hörð viðurlög vera við broti á kyrrsetningu
fréttablaðið/GVA
Steinunn Guðbjartsdóttir segir hörð viðurlög vera við broti á kyrrsetningu fréttablaðið/GVA
„Það er hægt að færa til fé eftir kyrrsetningu," segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. „Kyrrsetningarþola er tilkynnt um kyrrsetninguna og það eru hörð viðurlög við því að færa til fé eftir að slíkt er gert. Þetta eru bara skýringarnar sem hann gefur upp."

Fram kom í Fréttablaðinu á laugardag að um 110 milljónir króna hefðu verið kyrrsettar sem Jón Ásgeir Jóhannesson hafði flutt yfir á tvö bresk fyrirtæki, sem nánir samstarfsmenn hans eru í forsvari fyrir. Millifærslurnar áttu sér stað daginn eftir að eignir hans voru kyrrsettar í Bretlandi. Jón Ásgeir sagðist í samtali við Fréttablaðið hafa verið að borga skuldir.

Greiðslufyrirmælin hafi verið gefin út 7. maí, fjórum dögum fyrir kyrrsetningu. Tvo daga taki fyrir millifærslur í Bretlandi að komast í gegn. Greiðslurnar hafi lent á helgi og farið í gegn 12. maí, degi eftir að tilkynnt var um kyrrsetninguna.

„Enda hefði ekki verið hægt að færa út af reikningnum ef hann hefði verið frosinn," sagði Jón Ásgeir. Steinunn segir kyrrsetningu eigna ekki vera eins og frystingu reikninga. Þess vegna geti brot gegn kyrrsetningu haft alvarlegar afleiðingar í för með sér, jafnvel fangelsisvist. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×