Innlent

Óvissan er óþolandi

Runólfur 
Ólafsson
Runólfur Ólafsson

Stjórnvöld þurfa þegar að móta verklag sem styðjast má við vegna gengistryggðra bílalána að mati Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB. „Það er ekki hægt að bíða eftir dómi Hæstaréttar sem er ekki að vænta fyrr en eftir hálft ár eða jafnvel enn síðar,“ segir hann.

„Bílalánin eru hluti af skuldavanda heimilanna sem stjórnvöld hafa sagst vilja taka á en vitað er að ekki hefur verið nóg að gert,“ segir Runólfur.

Þó svo að fallnir séu tveir misvísandi dómar héraðsdóms um gengisbundin lán og úrskurðar Hæstaréttar beðið þá segir Runólfur það vera mat FÍB að seinni dómurinn sé líklegri til að verða staðfestur.

„Það er margt sem bendir til að þarna hafi verið um óeðlilega gjörninga að ræða og þess vegna brýnt að stjórnvöld móti einhverjar reglur um framhaldið. Óvissan er óþolandi og margir sem hafa þegar lent í vandræðum, vörslusviptingu og þar fram eftir götunum.“

Hann segir að til bóta væri að stjórnvöld tækju þegar afstöðu til álitamála á borð við það hvernig fara eigi með hina ýmsu lánasamninga sem kunna að vera ólögmætir. „Myndu þeir falla undir að vera bara með þá vexti sem í upphafi voru settir inn í samninginn og gengi á þeim tíma sem lánið var veitt, eða færu þeir undir ákvæði vísitölutryggðra lána á þessum tíma? Þarna ríkir mikil réttaróvissa.“ - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×