Mikil læti og gauragangur 19. mars 2010 06:00 leiklist Hanna María Karlsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson og Pétur Einarsson: kynslóðir rekast á – en sitja saman. Mynd LR/Grímur Bjarnason
Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld. Nokkur eftirvænting hefur ríkt um frumsýninguna en uppselt er á tuttugu sýningar og fyrirsjáanlegt að sýningin muni sópa að sér áhorfendum næstu mánuði enda öllu til tjaldað. Leikhússtjórinn sjálfur, Magnús Geir Þórðarson, setur söngleikinn á svið og hefur ekki unnið á stóra sviðinu síðan hann stóð fyrir sviðsetningu Stone Free þar fyrir mörgum árum. Gauragangur byggir á skáldsögu Ólafs Hauks sem kom fyrst út 1988 og hefur verið gefin út í þrígang. Verkinu var snúið í söngleiksform 1994 og það naut mikilla vinsælda í sviðsetningu Þjóðleikhússins og gat af sér bæði framhald á bók og síðan sviði, Meiri Gauragang. Hefur sagan verið afar vinsæl meðal ungra lesenda og leikverkið farið víða á svið í framhaldsskólum og hjá áhugafélögum. Verkið fjallar um töffarann og erkitýpuna Orm Óðinsson. Það fellur þematískt við ýmis verk Ólafs, bæði staka söngtexta hans, ljóðabækur, endurminningar og endurómar lífssýn hans og uppvaxtarsögu. Við kynnumst þessum höfuðsnillingi íslenskrar unglingamenningar; vinum hans, óvinum, hugsjónum, hugmyndum, orðsnilli, fjölskyldu, ljóðunum, skólanum og ástinni sem óneitanlega flækir líf ungra manna. Við fylgjumst með óborganlegum tilraunum Orms til þess að búa til gull, fara á stefnumót, láta reka sig úr skóla og sofa hjá! Gauragangur er þroskasaga einnar skemmtilegustu andhetju Íslandssögunnar. Ekki má gleyma stórgóðri tónlist Nýdanskrar sem gerir verkið að lifandi söngleik en hljómsveitin snýr nú aftur og leikur undir á sýningunni. Diskur með tónlistinni er þegar kominn í verslanir. Nýdönsk bætti við lagi fyrir þessa uppfærslu Gauragangs, Vertu með, sem samið var sérstaklega í tilefni hennar og hefur slegið rækilega í gegn á öldum ljósvakans. Þetta leikstjórnarverkefni er það fyrsta sem Magnús Geir Þórðarson glímir við í Borgarleikhúsinu eftir að hann tók við sem leikhússtjóri árið 2008. Með honum er fríður hópur fólks sem stendur að baki sýningunni. Ríflega tuttugu leikarar taka þátt í henni auk hljómsveitar og er þarna á ferðinni úrvalsfólk á öllum póstum. Guðjón Davíð Karlsson leikur aðalhlutverkið og er til alls líklegur í túlkun sinni á Ormi Óðinssyni. Besta vin Orms leikur Hallgrímur Ólafsson og þriðja hjólið í þríeykinu Ormur, Ranúr og Halla leikur Birgitta Birgisdóttir. Aðrir leikarar sem koma fram í sýningunni eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sveppi (Sverrir Þór Sverrisson), Valgerður Guðnadóttir, Walter Grímsson, Ellert A. Ingimundarson, Vigdís Gunnarsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Jóhann Sigurðarson, Örn Árnason, Pétur Einarsson, Hanna María Karlsdóttir, Viktor Már Bjarnason og Dóra Jóhannsdóttir. Leikmynd gerir Snorri Freyr Hilmarsson, búninga annast Filippía Elísdóttir, Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsir, hljóðmynd býr Thorbjørn Knudsen til, myndband er eftir Henrik Linnet, hreyfingar/danshöfundur er Margrét Bjarnadóttir, leikgervi gerir Elín S. Gísladóttir.
Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira