Enski boltinn

Styttist í Lennon

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images

Harry Redknapp, stjóri Spurs, er bjartsýnn á að sjá Aaron Lennon á ný í búningi Tottenham áður en tímabilið er á enda.

Lennon meiddist illa á nára í desember og hefur ekkert getað æft með liðinu síðan.

Hann er þó allur að koma til og iðar í skinninu að fá að spila á nýjan leik.

„Aaron getur ekki beðið eftir því að koma aftur og við erum að vonast eftir því að sjá hann á æfingasvæðinu í næstu viku. Við getum ekki beðið eftir að fá hann aftur," sagði Redknapp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×