Hræðsla þegar einn gleymdist 22. mars 2010 04:00 Kolbrún Björt Sigfúsdóttir
Töluverð hræðsla greip um sig í hópi ríflega fjörutíu leiklistarnema úr Menntaskólanum við Sund þegar þeim bárust fréttir af gosinu í miðju skólaferðalagi. Hópurinn var staddur í félagsheimilinu Gunnarshólma í Austur-Landeyjum. Kolbrún Björt Sigfúsdóttir og Erlingur Grétar Einarsson, leikstjórar verksins sem hópurinn hafði nýlokið sýningum á, sáu um það að koma hópnum út í rýmingarrútu og á Hvolsvöll. Fólkið þurfti að skilja föggur sínar eftir að miklu leyti, auk þess sem fáir voru ökufærir og því urðu einhverjir bílar eftir á staðnum líka. Kolbrún segir hópinn hafa verið nokkuð skelkaðan og að einhverjir hafi talið að þetta yrði þeirra síðasta. Sá ótti var þó skjótt kveðinn niður enda að mestu ástæðulaus. Þá var fólki mjög brugðið þegar komið var á Hvolsvöll og í ljós kom að einn pilturinn, góðglaður mjög, hafði orðið eftir í félagsheimilinu. Hann hafði illa gert sér grein fyrir ástandinu og ákvað að fara aftur inn í húsið að sofa. Þegar það uppgötvaðist að hann vantaði í hópinn var lögregla send eftir honum og skilaði honum á Hvolsvöll skömmu síðar. Nemarnir voru í kjölfarið allir ferjaðir til Reykjavíkur, en leikstjórarnir tveir fengu inni hjá ættingja Erlings í sveitinni. - sh
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Erlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Fleiri fréttir Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Sjá meira