Innlent

Kristján Möller: Þetta reddast

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, er einn valdamesti maður landsins um þessar mundir en fjögur ráðuneyti hvíla nú á hans herðum. Kristján óttast ekki vinnuálagið enda sé gott starfsfólk í öllum ráðuneytum.

Þrír ráðherrar samfylkingarinnar eru nú fjarverandi ýmist vegna sumarleyfa eða starfa á vegum ráðuneytisins.

Þetta eru þau Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.

Þessi ráðuneyti hvíla nú á herðum Kristjáns Möller, samgöngráðherra, sem segja má að sé nú fjögurra manna maki - enda fjórfaldur ráðherra.

Er þetta ekki of mikið álag? „Nei, nei. Þetta er allt í lagi í svona góðu veðri þegar það er svona góð ríkisstjórn í landinu. Meðan það er svona gott veður eins og er hérna þá reddast þetta allt saman með góðra manna hjálp. Það er gott starfsfólk í öllum ráðuneytum, þannig að þetta allt saman reddast," segir Kristján.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×