Danir telja ómögulegt að banna Vítisengla Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. mars 2010 17:37 Danir telja ómögulegt að banna Vítisengla. Mynd/ AFP.
Það er engin ástæða fyrir Dani til að kanna nánar hvort hægt sé að beita stjórnarskránni til þess að banna starfsemi mótorhjólaklúbba á borð við Vítisengla, eða aðra áþekka klúbba. Þetta eru niðurstöður skýrslu sem Lars Barfoed, dómsmálaráðherra Danmerkur, hefur undir höndum. Hann ætlar því ekki að kanna betur hvort slíkt bann sé raunhæfur kostur. Það voru embætti Ríkislögmanns og Ríkislögreglustjórans í Danmörku sem gerðu skýrsluna. Markmiðið var að kanna hvort hægt væri að sýna fram á að gengin væru hættuleg og glæpastarfsemi væri markmið þeirra. Niðurstöður skýrsluhöfunda eru þær að það sé einungis hægt að leysa upp slík glæpasamtök ef búið er að sanna að það sé markviss stefna þeirra að vinna að glæpum eða ofbeldi. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að það leiki umtalsverður vafi á því hvort hægt sé að færa fram slikar sannanir gegn tilteknum klúbbum. Þá spyrja skýrsluhöfundar jafnframt að því hvort meðlimir slíkra klúbba myndu hætta að fremja glæpi þótt þeim væri bannað að einkenna sig með því að ganga með merki á bakinu eða halda til í klúbbhúsum. Jafnframt efast skýrsluhöfundar um að það sé heppilegt að banna samtökin með lögum. Það gæti jafnvel gert rannsóknir á ýmsum glæpum erfiðari. Það var Danmarks Radio sem greindi frá.
Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Íranir enn vígreifir Erlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Fleiri fréttir Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Sjá meira