Vill rannsókn á Wikileaks-skjölum 25. október 2010 04:15 Abu Abdullah, verslunareigandi sem missti tvo syni sína í bílsprengingu, grætur við hlið vinar síns í rústum verslunarinnar. Atvikið átti sér stað fyrir þremur árum. mynd/ap
Bagdad, AP Nick Clegg, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, segir að rannsaka þurfi ásakanir um pyntingar hermanna á föngum og dráp þeirra á almennum borgunum sem eru bornar fram í leyniskjölum Bandaríkjahers sem Wikileaks-síðan hefur birt. Í viðtali við breska ríkissjónvarpið, BBC, sagði Clegg að sorglegt væri að lesa upplýsingarnar um fall almennra borgara í Írak og að málið væri grafalvarlegt. Wikileaks hefur birt tæplega 400 þúsund skjöl um stríðið í Írak þrátt fyrir mótbárur bandaríska- og breska varnarmálaráðuneytisins. Þar kemur fram að mun fleiri almennir borgarar hafi verið drepnir en Bandaríkjaher hefur hingað til látið í ljós. Í skjölunum eru nákvæmar skýrslur frá hermönnum um ofbeldið í landinu, þar á meðal skotárásir, bílsprengingar, pyntingar hermanna á skæruliðum, dráp í aftökustíl og önnur morð. Í skýrslunum er einnig að finna nöfn fórnarlamba, hvenær árásir áttu sér stað og í hvaða hverfum. Þessar upplýsingar eru á skjön við yfirlýsingar bandarískra ráðamanna sem hafa alltaf verið tregir til að veita upplýsingar um þá almennu borgara sem hafa farist í Íraksstríðinu. Hafa þeir borið fyrir sig að lítið væri um gögn þess efnis. Starfshópurinn Iraq Body Count hefur sérhæft sig í að telja þá almennu borgara í Írak sem hafa farist í stríðinu síðan það hófst. Hópurinn hefur rannsakað upplýsingarnar frá Wikileaks og segir fimmtán þúsund fleiri hafa látist í landinu en upphaflega var áætlað. Það þýðir að rúmlega 122 þúsund almennir borgarar hafi fallið frá því að mælingar hófust í byrjun árs 2004. „Bandarískur almenningur hefur rétt á að vita hversu margir hafa látið lífið í stríðunum í Afganistan og Írak," sagði Jameel Jaffer hjá bandarísku mannréttindasamtökunum American Civil Liberties. „Það hefði átt að láta fólk fá þessar upplýsingar fyrir löngu." Bandaríski herinn hefur einnig fylgst náið með þeim fjölda bandarískra hermanna sem hefur fallið í Írak og voru þeir 4.425 talsins síðasta laugardag. Musaab Adnan, sem missti 27 ára bróður sinn í bardaga á milli bandarískra og íraskra hermanna í bænum Haditha, segir að upplýsingarnar frá Wikileaks séu áminning um þá miklu grimmd sem ríkir í stríðinu. „Það er erfitt að gleyma því sem gerðist. Þeir sem voru drepnir fá aldrei neinar bætur. En með því að birta þessi skjöl sér heimurinn þessi voðaverk sem hafa verið framin gegn Írökum," sagði hann. Upplýsingafulltrúi bandaríska varnarmálaráðuneytisins segir að bandaríski herinn hafi gert sitt besta til að koma í veg fyrir fall almennra borgara í Írak. „Undanfarin sjö ár höfum við reynt allt sem í okkar valdi hefur staðið, og stundum reynt meira en nokkur annar her í sögunni, til að halda falli almennra borgara í lágmarki," sagði hann. Skýrslur Wikileaks virðast einnig styðja skoðun margra sérfræðinga um að bandaríski herinn eigi að halda mannskap sínum lengur í Írak en til ársins 2011 því ástandið sé ekki næstum því orðið nógu stöðugt. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Sjá meira