Grétar Rafn í byrjunarliði Bolton Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. apríl 2010 13:51 Grétar Rafn Steinsson í leik með Bolton gegn Chelsea fyrr í mánuðinum. Nordic Photos / Getty Images
Grétar Rafn Steinsson er í byrjunarliði Bolton sem tekur á móti botnliði ensku úrvalsdeildarinnar, Portsmouth, í dag. Hermann Hreiðarsson er vitanlega ekki í leikmannahópi Portsmouth þar sem hann á við erfið meiðsli að stríða. Bolton getur með sigri í dag gulltryggt sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni en liðið er sem stendur í 14. sæti deildarinnar með 35 stig, sjö stigum frá fallsæti. Wigan og Wolves geta einnig tryggt sæti sín í deildinni með sigrum í sínum leikjum. Wigan mætir West Ham á útivelli og Wolves tekur á móti Blackburn. West Ham þarf þó nauðsynlega á sigri að halda þar sem liðið er í fjórða neðsta sæti deildarinnar, aðeins þremur stigum á undan Hull sem mætir Sunderland í dag. Þá fer næstsíðasta umferðin fram í ensku B-deildinni í dag. Newcastle og West Brom eru þegar búin að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni og þá eru Nottingham Forest og Cardiff örugg með sæti í umspilinu. Leicester, Swansea og Blackpool berjast um hin tvö sætin í umspilinu. Plymouth og Peterbrough eru þegar fallin úr deildinni en Scunthorpe, Watford, Crystal Palace og Sheffield Wednesday eru öll enn í fallhættu. Aron Einar Gunnarsson er í byrjunarliði Coventry sem mætir Middlesbrough á útivelli. Kári Árnason hefur verið frá vegna meiðsla en hann er í byrjunarliði Plymouth sem spilar við Nottingham Forest á útivelli í dag. Þá mætast Íslendingaliðin Watford og Reading. Heiðar Helguson er í byrjunarliði Watford og Gylfi Sigurðsson sömuleiðis hjá Reading. Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekk Reading en Ívar Ingimarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru ekki í leikmannahópnum.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira