Innlent

Dæmdar 3 milljónir í bætur vegna læknamistaka sem leiddu til andláts

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða eiginmanni og tveimur börnum konu sem lést fyrir níu árum samtals þrjár milljónir króna í miskabætur. Konan lést á miðri meðgöngu eftir að fósturvísi var komið fyrir í legi hennar þegar hún var 47 ára gömul.

Fjölskylda konunnar krafðist bóta og byggði kröfuna á því að saknæm háttsemi hefði átt sér stað þegar fórstuvísi var komið fyrir í konunni og meðferð við meðgöngueitrun sem konan fékk hafi verið verulega ábótavant. Bótaskylda af hálfu ríkisins var viðurkennd en deilt var um fjárhæð bótanna fyrir rétti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×