Kviksett fyrir að vilja ekki selja húsið sitt Óli Tynes skrifar 10. mars 2010 11:01 Kínverskir verktakar nota ýmsar aðferðir til að sauma að þeim sem ekki vilja selja hús sín.
Nokkrir menn hafa verið handteknir í Hubei héraði í Kína fyrir að berja sjötíu ára gamla konu og grafa hana svo lifandi. Ástæðan var sú að Wang Cuyun neitaði að selja hús sitt sem verktakar vildu rífa til að reisa háhýsi. Fréttaritari Sky fréttastofunnar í Peking, Peter Sharp segir að verktakar í Kína taki fólk engum vettlingatökum ef það er að þvælast fyrir þeim. Mörg dæmi séu um að það sé beitt ofbeldi og kúgun allskonar til að koma því út úr húsum sínum. Kveikti í sér Í desember síðastliðnum hellti Xi Xinshu yfir sig bensíni og kveikti í sér þegar hópur manna réðst inn á heimili hans sem hann hafði neitað að selja. Í júlí árið 2008 var Wang Zaiying barinn til bana við hús sitt sem verktakar voru þegar búnir að leggja í rúst. Hann neitaði hinsvegar að fara af lóðinni. Grafin með jarðýtu Í fyrstnefnda tilfellinu mættu verktakar með stórvirkar vinnuvélar til þess að rífa hús Wang Cuyun. Hún reyndi að streitast á móti og að sögn sjónarvottar barði einn verkamannanna hana með spýtu. Henni var svo hent ofan í frárennslisskurð sem lá umhverfis húsið og jarðýta notuð til þess að grafa hana lifandi. Lögreglan horfði á Sonur konunnar og fleiri ættingjar reyndu að bjarga henni en þegar loks tókst að grafa hana upp var hún látin. Sjónarvottar segja að lögreglumenn hafi orðið vitni að öllu saman en hvorki hreyft legg né lið til þess að bjarga konunni. Þegar konan hafði verið grafin upp söfnuðust þúsundir manna saman við lík hennar til þess að mótmæla þessu framferði. Ritskoðun á netinu Það varð til þess að hreyfa við yfirvöldum. Á heimasíðu héraðsstjórnarinnar var skýrt frá láti hennar en sagt að það hafi verið slys. Rannsókn sé hafin á atburðinum og nokkrir menn verið handtekinir. Frá því á föstudag hafa allar fréttir af málinu á netinu verið ritskoðaðar.
Mest lesið Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Sjá meira