Macheda kemur aftur inn í lið United innan tveggja vikna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2010 14:30 Sir Alex Ferguson fagnar Federico Macheda eftir að strákurinn tryggði United sigur á Aston Villa í fyrra. Mynd/AFP
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að Ítalinn Federico Macheda sé að verða leikfær á ný eftir langvinn og leiðinleg kálfameiðsli. Macheda hefur aðeins spilað fimm leiki á þessu tímabili. Federico Macheda sló í gegn á Old Trafford í fyrra þegar hann tryggði liðinu dramatískan sigur á Aston Villa og fylgdi því síðan eftir með því að skora annað sigurmark á móti Sunderland. Þessir tveir sigurleikir áttu mikinn þátt í því að tryggja United enska meistaratitilinn á síðasta tímabili. Michael Owen meiddist á dögunum og verður ekki meira með á tímabilinu auk þess að Danny Welbeck verður í láni hjá Preston út tímabilið. Wayne Rooney, Dimitar Berbatov og nýliðinn Mame Biram Diouf eru því einu hreinræktuðu framherjar liðsins eins og staðan er í dag. „Macheda byrjaði að æfa í þessari viku. Hann hefur verið lengi meiddur og það hafa verið mikil vonbrigði fyrir okkur því hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður. Hann ætti að vera farin að spila fyrir okkur innan tveggja vikna," sagði Alex Ferguson en Macheda lék síðast með United í desember.
Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Sport Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Sjá meira