Þingmannanefnd fundar um stjórnsýsluna Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. maí 2010 19:57 Atli Gíslason segir að fundað verði með stjórnsýslunefnd á morgun. Mynd/ GVA.
Þingmannanefnd sem fer yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur saman á morgun til þess að fara yfir skýrsluna. Á fundinum munu mæta nefndarmenn úr nefnd sem forsætisráðherra skipaði til þess að fara yfir stjórnsýsluna. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, gegnir formennsku í þeirri nefnd. „Við erum búin að funda með þeim einu sinni áður og ætlum að stilla strengi til þess að við séum ekki að vinna tvíverknað," segir Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar. Þá mun þingmannanefndin funda með lögspekingum sem nefndin hefur sér til fulltingis en það eru þau Jónatan Þórmundsson, Ragnhildur Helgadóttir og Bryndís Hlöðversdóttir. Þingmannanefndin kemur saman tvisvar í viku. Á fundi nefndarinnar á þriðjudag fyrir viku var rætt um gagnaver á Suðurnesjum og fyrirhugaðan samning ríkisins við Verne Holdings ehf. um byggingu og rekstur þess. Tveir nefndarmanna sitja einnig í iðnaðarnefnd, þau Lilja Rafney Magnúsdóttir og Atli Gíslason. Samkvæmt fundargerð greindi Lilja Rafney frá þeirri ákvörðun sinni að víkja úr iðnaðarnefnd á meðan málefni Verne Holdings ehf. eru þar til umræðu þar sem einn eigenda fyrirtækisins er jafnframt til umfjöllunar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda bankahrunsins. Umræddur eigandi er Björgólfur Thor Björgólfsson. Atli Gíslason segist einnig hafa vikið úr iðnaðarnefnd á meðan að málefni Verne Holdings eru rædd þar, líkt og Lilja Rafney.
Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira