Burnley fallið úr ensku úrvalsdeildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. apríl 2010 15:56 Steven Gerrard fagnar öðru marka sinna gegn Burnley í dag. Nordic Photos / Getty Images
Liverpool vann í dag 4-0 sigur á Burnley í ensku úrvalsdeildinni en þar með varð ljóst að síðarnefnda liðið er fallið úr deildinni. Þá vann Everton nauman 2-1 sigur á Fulham á heimavelli sínum en sigurmarkið skoraði Mikel Arteta úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu uppbótartíma. Liverpool er enn í sjöunda sæti deildarinnar eftir sigurinn á Burnley en aðeins tvö stig skilja að liðin í 4.-7. sæti. Tottenham og Aston Villa eru bæði með 64 stig, Manchester City er með 63 og Liverpool 62. Tottenham og City eiga þó leik til góða. Markalaust var í hálfleik en Steven Gerrard skoraði tvívegis á fyrsta stundarfjórðungi síðari hálfleiksins. Maxi Rodriguez bætti því þriðja við á 74. mínútu og Ryan Babel innsiglaði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Fyrra mark Gerrard kom eftir að skot hans breytti um stefnu á Leon Cort, varnarmanni Burnley, og hafnaði í netinu. Síðara markið kom svo eftir glæsilegt skot utan teigs. Maxi Rodriguez skoraði svo sitt fyrsta mark í enska boltanum eftir að hafa afgreitt knöttinn laglega í netið af stuttu færi eftir stungusendingu Alberto Aquilani. Babel komst svo einn í gegnum vörn Burnley í uppbótartíma eftir sendingu Lucas Leiva og skoraði fjórða og síðasta mark Liverpool. Burnley er með 27 stig í næstsíðasta sæti deildarinnar, sjö stigum frá öruggu sæti þegar aðeins sex stig eru eftir í pottinum. Burnley og Portsmouth eru því fallin og nánast öruggt að Hull mun fylgja með í ensku B-deildina. Everton á enn möguleika á að komast upp í sjöunda sæti deildarinnar og þar með í Evrópusæti eftir sigurinn í dag en sá möguleiki er lítill. Liðið er fimm stigum á eftir Liverpool þegar tvær umferðir eru eftir af deildakeppninni. Liðið lenti undir í leik sínum gegn Fulham í dag er Erik Nevland nýtti sér mistök Leighton Baines í vörn Everton og skoraði ágætt mark. Chris Smalling varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í upphafi síðari hálfleiks og jafnaði þar með metin fyrir Everton. Sigurmarkið kom svo í uppbótartíma, sem fyrr segir, úr vítaspyrnu sem var dæmd eftir að Chris Baird braut á Tim Cahill. Fulham er í tólfta sæti deildarinnar með 43 stig.
Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfubolti Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Sjá meira