Ingunn vel hlaðin með fyrstu loðnuna til Akraness 17. febrúar 2010 18:43
Menn bíða þess nú spenntir hvort loðnukvótinn verði aukinn á næstu dögum. Tugmilljarða verðmæti eru í húfi. Þessa stundina er verið að landa fyrstu loðnunni á þessari vertíð á Akranesi. Ingunn AK var vel hlaðin þegar hún sigldi inn til Akraness nú undir kvöld með 600 tonna farm. Hátt verð fæst nú fyrir loðnuafurðir og gæti verðmæti farmsins nálgast 50 milljónir króna. Elías Kristinsson, 2. stýrimaður, sagði í viðtali á Stöð 2 að loðnan hefði fengist í tveimur köstum á Faxaflóa, rétt fyrir utan. Þar væri loðna út um allt. Hún er við það að verða hrognafull en þá er loðnan komin í sitt mesta verðmæti og er stefnt að því að farmur Ingunnar fari í hrognavinnslu á Skaganum. Flotinn er að veiða úr litlum byrjunarkvóta. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er hins vegar við mælingar á loðnutorfum við suðurstöndina og gætu niðurstöður jafnvel legið fyrir á morgun. Elías segir að menn geri sér því vonir um að meiri kvóti verði gefinn út. Fyrir þjóðarbúið gætu næstu þrjár til fjórar vikur, áður en loðnan hrygnir og drepst, skipt höfuðmáli. Flotinn gæti náð nokkurra milljarða verðmæti úr loðnunni en einnig nokkurra tuga milljarða króna verðmæti. Loðnuævintýri gæti því verið í uppsiglingu.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Erlent Diddy ætlar ekki að bera vitni Erlent Fleiri fréttir Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Sjá meira