Haldið upp á öskudaginn Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. febrúar 2010 11:26 Þessir drengir urðu á vegi ljósmyndara Fréttablaðsins á Faxafeni. Mynd/ Vilhelm.
Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum að í dag er öskudagur. Af því tilefni hafa eflaust margir, ungir sem aldnir, brugðið sér í margvísleg skemmtileg gervi. Þessir hressu strákar urðu á vegi myndatökumanna 365 í morgun. Á Vísindavefnum kemur fra að Öskudagur er upphafsdagur lönguföstu, miðvikudagurinn í sjöundu viku fyrir páska. Dagsetning hans getur sveiflast á milli 4. febrúar til 10. mars. Öskudagur hefur lengi verið mikilvægur í katólska kirkjuárinu og nafn hans er dregið af því að þá er sumstaðar ösku dreift yfir höfuð kirkjugesta, og til þess notaður jafnvel sérstakur vöndur. Annarsstaðar þekkist að ösku sé smurt á enni kirkjugesta. Langafasta er hinn kirkjulegi tími iðrunar og dreifing ösku yfir söfnuðinn minnir hann á forgengileikann og hreinsar hann um leið af syndum.Þessir drengir komu við í Skaftahlíðinni og voru búnir að útbúa sig sem uppvakninga. Mynd/ Sigurjón. Vísindavefurinn bendir jafnframt á að nafnið öskudagur kemur fyrir í íslenskum handritum frá 14. öld og leiða má líkum að því að það sé enn eldra. Þar má sjá að dagurinn gegnir sama hlutverki hér og í öðrum katólskum sið í Evrópu, hann er dagur iðrunar fyrir gjörðar syndir. Langafasta átti að vera tími íhugunar og góðrar breytni, auk föstunnar að sjálfsögðu, sem á Íslandi takmarkaðist yfirleitt við kjötmeti en gat einnig náð til fiskvöru og mjólkurafurða. Ef langt var gengið hljóðaði mataræðið upp á vatn og brauð. Í Evrópu tíðkuðust, og tíðkast enn þar og víða í heiminum, sérstakar kjötkveðjuhátíðir síðustu dagana fyrir lönguföstu, miklar útihátíðir og skemmtanir.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Fleiri fréttir Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Fangar þurfi að fylgja samþykktri dagskrá í dagsleyfum Segir fækkun útlendinga sýna að stjórnvöld nái tökum á innflytjendamálum Bein útsending: Daði Már gangsetur vindmyllur Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Sjá meira