Enski boltinn

Portsmouth mætir Chelsea í úrslitum bikarsins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Piquionne kemur Portsmouth yfir í leiknum.
Piquionne kemur Portsmouth yfir í leiknum.

Hið gjaldþrota lið Portsmouth gerði sér lítið fyrir í dag og tryggði sér sæti í úrslitum ensku bikarkeppninnar þar sem liðið mun mæta Chelsea.

Portsmouth lagði Tottenham, 2-0, eftir framlengingu. Frederic Piquionne kom Portsmouth yfir á 99. mínútu og Kevin-Prince Boateng kláraði málið með marki úr vítaspyrnu á 117. mínútu.

Eiður Smári Guðjohnsen kom af bekk Spurs undir lok fyrri hálfleiks framlengingarinnar. Hann náði sér ekki á strik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×