Benitez vill kaupa fimm leikmenn í sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. apríl 2010 11:30 Rafa Benitez, stjóri Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Rafael Benitez viðurkenndi eftir að Liverpool datt út í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í gær að hann þyrfti að kaupa næstum hálft nýtt byrjunarlið í sumar. Liverpool vann Atletico Madrid, 2-1, í gær en samanlögð úrslit úr leikjum liðanna var 2-2 og komst því síðarnefnda liðið áfram í úrslitaleikinn gegn Fulham á útivallarmarkinu sem Diego Forlan skoraði í framlengingu leiksins í gær. Nú er því ljóst að Liverpool vinnur enga titla í ár. Það mun nú reyna að ná fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í síðustu tveimur umferðunum en þar á liðið í harðri baráttu við þrjú önnur lið - Tottenham, Manchester City og Aston Villa. Takist liðinu ekki að ná fjórða sætinu og tryggja sér þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu er talið óvíst að Rafa Benitez haldi áfram með liðið á næsta tímabili. „Einhver sagði að við þyrftum fjóra eða fimm nýja leikmenn. Ég er eiginlega sammála því. Það er það sem við þurfum að gera," sagði Benitez eftir leikinn í gær. „Liverpool er risastórt félag og það hefur ákveðin breyting átt sér stað á síðustu 2-3 árum. Við höfum þurft að koma jafnvægi á bókhaldið og reka félagið út frá þeim forsendum." „Ég veit ekki hvort það séu til peningar fyrir leikmannakaupum í sumar. Við komumst að því síðar."
Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira