Breiðband Símans er barn síns tíma 27. október 2010 06:00 Margrét Stefánsdóttir
Kostnaður við Ljósnetsvæðingu Símans er tæpur milljarður króna. Ljósleiðarinn á að leysa af hólmi breiðbandið, fimmtán ára gamla tækni sem átti þó að vara til framtíðar. Kostnaður Símans við breiðbandið var einnig tæpur milljarður, að sögn Margrétar Stefánsdóttur, forstöðumanns samskiptasviðs Símans. Margrét segir ástæðurnar fyrir breytingunum þær að breiðbandið sé barn síns tíma og Síminn sjái ekki hag sinn í því að halda því við. „Breiðbandið er ekki framtíðin. Það var byggt upp fyrir fimmtán árum og það sem menn sáu fyrir sér þá,“ segir Margrét. Í fréttatilkynningu frá Símanum dagsettri 2. maí 2002 segir: „Í framtíðinni verður breiðbandið eitt helsta gagnaflutningskerfi fyrir sjónvarp, útvarp, tölvur og síma, bæði myndasíma og talsíma. Kostir breiðbandsins í flutningi á sjónvarpsefni eru m.a. mikil flutningsgeta, frábær myndgæði og öryggi í sendingum. Með breiðbandinu gefst í framtíðinni kostur á gagnvirku sjónvarpi, þáttasölusjónvarpi, heimabíói eftir pöntunum svo eitthvað sé nefnt.“ Margrét segir breiðbandið hafa verið fína fjárfestingu á sínum tíma. „Menn gátu ekki horft mikið lengra inn í framtíðina. Það var verið að taka mið af þeim endabúnaði sem í þá daga var breiðbandið og er nú ljósleiðarinn.“ Tengja á ljósleiðara inn á 40 þúsund heimili á árunum 2010 og 2011 og hluti breiðbandsins sem lagt var inn á 35 þúsund heimili fyrir um fimmtán árum víkur. Ástæðan fyrir því að nauðsynlegt er að loka á útsendingar Símans um breiðband þegar ljósleiðara hefur komið fyrir er sú að götuskápar sem hýsa búnaðinn leyfa ekki að ljósnetsbúnaður sé settur samhliða núverandi breiðbandsbúnaði. Breiðbandið var lagt samhliða lagningu Orkuveitunnar á öðrum lögnum og koparlagningu Símans. Kostnaði varð því að skipta á milli fyrirtækjanna tveggja annars vegar og breiðbandsins og koparsins hins vegar.sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Innlent Fleiri fréttir Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Sjá meira