Yfir þrjú hundruð látnir í Indónesíu 27. október 2010 20:15
Mörghundruð manns hafa farist í tvennskonar náttúruhamförum samtímis í Indónesíu, annarsvegar flóðbylgju og hinsvegar eldgosi. Vitað er að yfir þrjúhundruð hafa látið lífið og yfir fimmhundruð er saknað eftir náttúruhamfarirnar í Indónesíu. Talið er næsta víst að þeir sem saknað er séu látnir. Björgunarsveitir eru enn að berjast við að komast á slysavettvang á eyjunum sem urðu fyrir þriggja metra hárri flóðbylgju eftir 7,7 stiga jarðskjálfta á hafsbotni. Flóðbylgjan sópaði heilu þorpunum með sér á haf út. Þúsundir manna misstu einnig heimili sín. Loftmyndir af ströndina sýna að þótt flóðbylgjan sé löngu gengin yfir liggur ennþá vatn yfir stórum svæðum, sem vart verða byggð aftur í bráð. Flóðbylgjan gekk yfir litlar úteyjar en á eynni Jövu hefur eldfjallið Merapi orðið minnst þrjátíu manns að bana og eyðilagt þúsundir heimila. Þrátt fyrir aðvaranir vísindamanna fyrir mörgum dögum um að eldgos væri yfirvofandi þrjóskuðust margir íbúanna við að yfirgefa heimili sín. Fjölmennar byggðir eru yfirleitt í hlíðum eldfjalla í Indónesíu og þrátt fyrir mikið manntjón á undangengnum áratugum eru ótrúlega margir sem neita að forða sér. Fólkið sem lét lífið dó þegar sjóðandi heit gjóska helltist yfir það. Margir fleiri eru auk þess hræðilega brenndir. Þykkt öskulag liffur þegar yfir mörgum þorpum og haft á orði að þetta líkist einna helst borginni Pompei sem hvarf undir ösku eftir gos í Vesúvíusi.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Sjá meira