Innlent

Hart slegist um verk hjá Vegagerðinni

Úr safni. Alls bárust 9 tilboð og þau reynust öll langt undir kostnaðaráætlun.
Úr safni. Alls bárust 9 tilboð og þau reynust öll langt undir kostnaðaráætlun. Mynd/Stefán Karlsson
Tilboð sem Vegagerðin opnaði í síðustu viku í lagfæringar á Laugarvatnsvegi sýna glöggt hvað verktakamarkaðurinn er sveltur og hungraður í verkefni. Alls bárust 9 tilboð og þau reynust öll langt undir kostnaðaráætlun.

Kostnaðaráætlun við breikkun og styrkingu liðlega fjögurra kílómetra kafla milli Skillandsár og Hólabrekku var upp á 82,5 millljónir króna. Sá sem lægst bauð, Vélgrafan á Selfossi, bauðst til að vinna verkið fyrir aðeins 43,4 milljónir króna eða rétt liðlega helming áætlaðs kostnaðar og hæsta boð var einnig vel innan við áæltun, eða upp á 57 milljónir króna. Þannig var lægsta tilboð aðeins 52,6% af kostnaðaráætlun meðan hæsta tilboðið var 69% af kostnaðaráætlun, sem er mjög óvenjulegt ef ekki einstakt.

Verkinu á að vera lokið fyrir 15. júní á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×