Hnökrar á danskri geimferðaáætlun 7. september 2010 04:45 Danskir geimáhugamenn höfðu fengið leyfi til að skjóta eldflaug á loft frá fljótandi skotpalli. Pallurinn var byggður sérstaklega fyrir verkefnið á hafsvæði skammt frá Borgundarhólmi. Nordicphotos/AFP
Hópur danskra geimáhugamanna þurfti að hætta við fyrirhugað eldflaugarskot á sunnudag vegna bilunar í eldflaug. Hópurinn hefur það að markmiði að koma manni út í geim. Áhorfendur biðu spenntir þegar eldflaugin átti að taka á loft frá fljótandi skotpalli skammt frá Borgundarhólmi, en urðu fyrir vonbrigðum þegar eldflaugin gaf frá sér lítinn reykjarhnoðra og gerði sig ekki líklega til frekari afreka þann daginn. Markmið hópsins, sem kallar sig Copenhagen Suborbitals, var að koma eldflauginni, sem er um níu metra löng og vegur 1,6 tonn, í 30 kílómetra hæð. Með í för var dúkka í mannsmynd. Lokamarkmið hópsins er að senda fólk út fyrir gufuhvolf jarðarinnar, og þar með út í geiminn, í skamma stund áður en eldflaugin snýr aftur til jarðar. „Við munum ekki skipta út dúkkunni fyrir alvöru manneskju fyrr en við höfum séð eldflaugina ná í rétta hæð nokkrum sinnum,“ sagði Kristian von Bengtson, talsmaður Copenhagen Suborbitals, við BBC eftir að skotið hafði misheppnast. Hópurinn áformar að bjóða áhugasömum geimferðamönnum upp á stuttar ferðir út í geim á mun ódýrari hátt en aðrir. Á móti munu ferðalangarnir sem taka sér far með þeirra geimflaugum njóta takmarkaðra þæginda, enda lítið pláss í stjórnklefanum. Geimferjan sem farþegar munu sitja í er rétt rúmlega axlabreitt rör sem geimfararnir væntanlegu standa eða sitja í. Þeir munu geta séð allt í kring og ætti útsýnið að vera magnað ef eldflaugin nær að koma geimferjunni í nægilega mikla hæð til að fara út fyrir gufuhvolf jarðar. Ætlunin er að geimferjan sveigi skömmu síðar aftur að jörðu. Fallhlífar eiga að tryggja að farþeginn lifi af lendingu geimferjunnar á sjónum. „Það gæti tekið meira en þrjú ár, en gæti tekið innan við tíu ár. Það er erfitt að segja af því við erum ekki að reyna að drepa okkur á þessu, við höfum bara gaman af þessu,“ segir von Bengtson. Við skoðun á eldflauginni kom í ljós að leiðsla fyrir fljótandi súrefni, sem er afar kalt, hafði stíflast og kom það í veg fyrir eldflaugaskotið. Ekki var hægt að gera við eldflaugina á sunnudag og því varð ekkert úr eldflaugarskotinu. Dönsku geimáhugamennirnir hafa fengið afnot af heræfingasvæði danska sjóhersins við Borgundarhólm til 17. september, og eru vongóðir um að koma eldflauginni á loft fyrir þann tíma. Takist það ekki gætu þeir þurft að bíða með eldflaugarskotið fram á næsta ár. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira