Innlent

Bleikur föstudagur í dag

Krabbameinsfélagið gaf Jóni Gnarr borgarstjóra bleik jakkaföt í tilefni dagsins.
Krabbameinsfélagið gaf Jóni Gnarr borgarstjóra bleik jakkaföt í tilefni dagsins.

Í dag klæðist fólk einhverju bleiku og vefsíður, byggingar og fleira eru skreyttar bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Októbermánuður er mánuður bleiku slaufunnar og árveknisátaks gegn krabbameinum hjá konum. Krabbameinsfélagið efnir nú til bleiks dags og hvetur fólk um land allt til að klæðast bleiku í dag til tákns um samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Krabbameinsfélagið selur sérstakar bleikar nælur og rennur ágóðinn til baráttunnar. Nú hafa 26 þúsund nælur selst en Krabbameinsfélagið stefnir á að selja fimmtíu þúsund nælur. Þá gaf Krabbameinsfélagið Jóni Gnarr borgarstjóra bleik jakkaföt í tilefni dagsins en þau voru sérsniðin á hann af Berglindi Magnúsdóttur í Klæðskerahöllinni og mætti borgarstjórinn í Ráðhúsið í morgun í nýju fötunum. Hið opinbera sýnir einnig samstöðu því bleikri lýsingu hefur verið varpað á opinberar byggingar eins og Stjórnarráðið, Háskóla Íslands og húsnæði Menntaskólans í Reykjavík. Einkaaðilar gera slíkt hið sama og ýmis húsnæði í bænum eru skreytt með einhverju bleiku.

Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsfélaginu ætla nokkrir vinnustaðir að leika sér dálítið með bleika þemað í dag og keppa um flottasta dressið og bestu bleiku deildirnar. Krabbameinsfélagið hvetur fólk til að senda sér skemmtilegar bleikar myndir af vinahópnum á netfangið laila@krabb.is, og verða þessar myndir settar á vef Krabbameinsfélagsins og á síðu félagsins á Facebook. Ýmsar vefsíður eru klæddar bleiku í dag og er fréttavefurinn Vísir skreyttur með fagurbleikum borða.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×