Mikill munur á lánum 24. júní 2010 18:53
Gríðarlegur munur er á eftirstöðvum lána þeirra sem tóku gengistryggð lán annars vegar og hefðbundin verðtryggð lán hins vegar eftir að Hæstiréttur dæmdi gengistryggingu lána ólöglega. Eftirstöðvar tveggja milljóna verðtryggðs láns sem tekið var árið 2008 eru nú 1,3 milljónir, en 275 þúsund af láni sem áður bar gengistryggingu. Við skulum ímynda okkur tvær fjölskyldur sem taka tveggja milljóna lán til bílakaupa fyrsta janúar árið 2008. Lánin eru sambærileg að flestu leyti, bæði eru þau til 5 ára með mánaðarlegum afborgunum og þau bera 5% ársvexti, en stóri munurinn er sá að annað þeirra er gengistryggt miðað við gengisvísitölu, en hitt verðtryggt miðað við neysluvísitölu. Flest gengistryggð lán voru reyndar bundin einstökum gjaldmiðlum, sem hækkuðu í einhverjum tilfellum mun meira en gengisvísitalan, en við skulum samt nota hana til skýringar. Fyrstu afborganirnar eru sambærilegar, en fljótlega fer að halla undan fæti. Höfuðstóll verðtryggða lánsins hækkar hratt með aukinni verðbólgu, en höfuðstóll gengistryggða lánsins tekur enn stærra stökk. Ef við gefum okkur að báðir lánþegar hafi staðið í skilum stóðu lánin þannig 1. júní síðastliðinn að eftirstöðvar verðtryggða lánsins voru yfir 1,3 milljónir, en eftirstöðvar gengistryggða yfir 1,8 milljónir - rétt tæplega lánsupphæðin, þrátt fyrir að greitt hafi verið af láninu í tvö og hálft ár. Afborganir beggja hafa jafnframt hækkað talsvert, þó gengistryggða lánsins meira. Fjölskyldan með gengistryggða lánið hefur að auki greitt tæpum 600 þúsund krónum meira yfir lánstímann en hin samkvæmt útreikningum fréttastofu. En síðan fellur gengisdómur Hæstaréttar. Ef við gefum okkur að allir skilmálar gengistryggða lánsins aðrir en gengistryggingin sjálf haldi, og allar ofgreiddar afborganir og vextir fari upp í höfuðstólinn líta lánin svona út. Eftirstöðvar gengistryggða lánsins standa í um 275.000 krónum, en eftirstöðvar verðtryggða lánsins eru óbreyttar.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Sjá meira