Fundum Alþingis frestað 24. júní 2010 18:08 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, frestaði fundum Alþingis skömmu eftir klukkan 17 í dag. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sagði að sumarhléið verði óvenju stutt að þessu sinni en þingnefndir koma saman um miðjan ágúst en fyrsti þingfundurinn verður haldinn í byrjun september. Hún sagði að verkefni þingmannanefndar sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis verði sett í forgang í störfum þingsins í ágúst og september. Ásta Ragnheiður sagði að sú gagnrýni sem þingmenn sæti stafi ekki síst af þeirri stjórnmálamenningu og umræðuhefð sem Alþingi sé mótað af. „Á þeirri stöðu berum við öll ábyrgð, ég ekki síður en aðrir. Ég tel mikilvægt að við reynum að bæta þingið en eyðum ekki kröftum okkar í að tala illa um það. Í þeirri gagnrýni sem Alþingi sætir eru að mínum dómi margs konar ranghugmyndir sem þarf að leiðrétta. Og við þurfum að leggja aukna áherslu á að kynna starf þingsins og stjórnmálamanna." Þá sagði Ásta Ragnheiður að það væri verkefni þingmanna að þróa og bæta vinnubrögðin á Alþingi. „Í dag lagði ég fram frumvarp til laga um breytingu á þingsköpum Alþingis. Frumvarpið er byggt á þeim ábendingum sem koma fram í skýrslu vinnuhóps forsætisnefndar um eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu. Þar eru á ferðinni ýmsar róttækar breytingar, m.a. á nefndakerfi þingsins og gerð tillaga um nýja nefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd."
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Sjá meira