Innlent

Eftirlitsnefnd sveitarfélaga fær upplýsingar

Frumvarp sem veitir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga skýra heimild til að kalla eftir ársfjórðungslegum reikningsskilum frá sveitarfélögum var samþykkt í ríkisstjórn í gær.

Þar er kveðið á um að eftirlitsnefndin fái sömu heimildir og löggiltir endurskoðendur sveitarfélaga til þess að afla upplýsinga hjá sveitarfélögum.

Formleg heimild hefur ekki verið til staðar fram að þessu. Samkvæmt heimildum hafa einstök sveitarfélög verið treg til samstarfs við nefndina vegna þess. Stefnt er að afgreiðslu frumvarpsins á Alþingi fyrir vorið. - pg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×