Innlent

Ísland sett í öndvegi í Mílanó

Frá Mílanó Ljósmyndasýningin er upplýst að næturlagi og til þess er nýtt orka sólarinnar.mynd/útflutningsráð
Frá Mílanó Ljósmyndasýningin er upplýst að næturlagi og til þess er nýtt orka sólarinnar.mynd/útflutningsráð

Ljósmyndir frá Íslandi prýða nú eina fjölförnustu göngugötu Mílanóborgar, Corso Vittorio Emanuele. Ljósmyndasýningin var opnuð á Íslandsdegi í Mílanó síðastliðinn föstudag, af þeim Kristjáni L. Möller samgönguráðherra og Massimiliano Orsatti, yfirmanni markaðs- og ferðamála borgarinnar.

Alls tóku fulltrúar 23 íslenskra fyrirtækja, stofnana og samtaka þátt í Íslandsdeginum sem er sá fyrsti í röð margra sem Mílanóborg hefur boðað til af því tilefni að borginni hefur verið falið að halda heimssýninguna 2015.

Sigurður Þorsteinsson hönnuður hafði veg og vanda af vali Íslandsmyndanna en flestar þeirra eru eftir ítölsku ljósmyndarana Marco Stoppato og Amanda Ronzoni.

Um göngugötuna fer allt að ein milljón manna þessar tæplega tvær vikur sem sýningin stendur uppi. Myndunum, þrjátíu stórum ásamt fjölda smærri, er komið fyrir á fimmtán stórum stöndum sem útbúnir eru sólarsellum, þannig að myndirnar eru upplýstar að næturlagi.

Utanríkisráðuneytið stóð fyrir fjölmennu málþingi á Íslandsdeginum. Tíu ferðaþjónustufyrirtæki kynntu þar starfsemi sína. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×