Reynt að funda um nýjan samning í dag 3. mars 2010 06:00
Bretar og Hollendingar fóru í gær yfir tilboð Íslendinga um nýja lausn á Icesave. Tveir fundir voru með íslensku sendinefndinni sem er ytra. Hún er þar enn og er reiknað með frekari samtölum í dag. Óvíst er hvort um formlega fundi verður að ræða. Ákvörðun um heimför nefndarinnar bíður viðbragðanna. Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, sem situr í samninganefndinni, segir að fundir gærdagsins hafi verið góðir. „Það voru tveir ágætir fundir í dag [gær] og menn hafa verið í sambandi og skipst á hugmyndum." Hann eigi allt eins von á að nefndin komi heim í dag, en ekki megi lesa of mikið í það, hún hafi verið á heimleið undanfarna daga. Næstu skref eru Breta og Hollendinga. Þeir fengu í gær frekari útreikninga á hvað hugmyndir Íslendinga þýða. Áfangi náðist þegar formlegir fundir voru haldnir í gær, en fram að því hafði nefndin aðeins verið í óformlegu sambandi við viðsemjendur sína í þessari útiveru. Fulltrúar Hollendinga komu til London til að sitja fundina. Þeir ráðslaga nú við Breta um næstu skref. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun ríkisstjórnin leggja fram frumvarp um að lögin, sem kjósa á um í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag, verði dregin til baka, náist samkomulag í London. Þar á bæ sé litið á atkvæðagreiðsluna sem óþarfa náist nýir samningar. Ekki sé þörf á kosningum um ríkisábyrgð á samningum sem verði í raun fallnir úr gildi. Gangi það eftir þurfa stjórnarflokkarnir að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um að hætta við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá snýst tilboð Íslendinga um greiðslu á höfuðstól og fjármögnunarkostnaði. Sætti viðsemjendur sig við það, sé um umfangsmikla lækkun að ræða frá fyrri samningum. - kóp
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Sjá meira