Innlent

Domus og hótel áfram óafgreitt

Heilsuverndarreitur Breytingar fyrirhugaðar en leyfin ekki komin.
Heilsuverndarreitur Breytingar fyrirhugaðar en leyfin ekki komin.

Afgreiðslu leyfa fyrir tvær umdeildar framkvæmdir á Heilsuverndarreitnum við Barónsstíg og Egilsgötu var frestað á síðasta fundi skipulagsráðs Reykjavíkur.

Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu sækir húsfélag Domus Medica um leyfi fyrir þriggja hæða viðbyggingu ásamt bílageymslu á tveimur hæðum. Þessum áformum hafa íbúar við Egilsgötu og eigandi gömlu Heilsuverndarstöðvarinnar mótmælt með vísan í aukna bílaumferð. Eigandi Heilsuverndarstöðvarinnar fyrir sitt leyti vill fá heimild til að innrétta bygginguna þannig að Icelandair Hotels geti hafið þar rekstur í vor. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×