Innlent

Enn hefur ekki heyrst í 15 Íslendingum

Utanríkisráðuneytið.
Utanríkisráðuneytið. Mynd/GVA
Yfir 150 eru látnir eftir jarðskjálftann sem skók Chile í morgun og búist er við að tala látinna fari hækkandi. Utanríkisráðuneytið hefur nöfn 38 Íslendinga sem staddir eru í Chile og eru 23 þeirra heilir á húfi. Enn hefur ekki heyrst í 15 Íslendingum

„Við höfum ekki ástæðu til óttast um þetta fólk. Þær upplýsingar sem höfum frá þeim svæðum sem um er að ræða benda ekki til þess að eitthvað ami að fólkinu, en auðvitað getur maður ekki verið viss. Þetta snýst um að við viljum heyra frá þessu fólki," segir Pétur Ásgeirsson, sviðsstjóri í utanríkisráðuneytinu.

Utanríkisráðuneytið óskar eftir upplýsingum frá fólki hér á landi um hugsanlega fleiri Íslendinga í Chile og er þeim ráðlagt að hringja í neyðarsímann 545-9900. Ráðuneytið hefur sent lista með nöfnum Íslendinganna á norrænu sendiráðin í Chile.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×