Ekki aðeins útvaldir fái afslátt 11. janúar 2010 03:30 Pétur Ágústsson Vestfirðingar fengu sérstakan afslátt í Breiðafjarðarferjuna Baldur en nú telja Sæferðir sér ekki lengur stætt á að mismuna fólki á þann máta. „
Lögfræðingur okkar segir að þetta hafi verið á gráu svæði svo við ætlum að breyta afsláttarfyrirkomulaginu," segir Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða, sem rekur Breiðafjarðarferjuna Baldur. Fram til þessa hafa Vestfirðingar notið sérkjara í fargjöldum og fengið allt að 50 prósent afslátt. Pétur segir að athugasemdir hafi verið gerðar við það af fólki sem taldi sér mismunað með þessu. Niðurstaðan hafi verið sú að breyta fyrirkomulaginu. „Þetta verður framvegis með svipuðu sniði og í Hvalfjarðargöngunum. Hægt verður að kaupa kort fyrirfram og fæst mismikill afsláttur eftir því hversu margar ferðir eru keyptar. Þannig fá þeir mestan afslátt sem eru í mestum viðskiptum og allir sitja við sama borð," útskýrir Pétur sem kveður afsláttinn framvegis geta orðið á bilinu 25 til 45 prósent. Vegna sparnaðar hjá Vegagerðinni, sem styrkir vetraráætlun Baldurs, siglir ferjan nú aðeins sex daga vikunnar en ekki á hverjum degi. Pétur segir að eftir könnun meðal notenda ferjunnar hafi verið ákveðið að fella laugardagana út. „Þetta er alls ekki heppilegt, til dæmis gagnvart jarðarförum sem oft eru á laugardögum. En atvinnulífsins vegna var ekki hægt að fella út virkan dag svo þetta varð lendingin." - gar
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira