Innlent

Þyrlan komin til Reykjavíkur

Viðamiklar björgunaraðgerðir hafa verið á Langjökli í dag við að ná konu og sjö ára gömlum syni hennar upp úr djúpri jökulsprungu. Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti nú undir kvöld með annað þeirra við Borgarspítalann en engar staðfestar upplýsingar hafa fengist um líðan þeirra.

Tilkynning um slysið barst um eittleytið en það varð í vestanverðum Langjökli, norðaustan við Geitlandsjökul. Fólkið var í jeppaleiðangri og eftir því sem næst verður komið voru mæðginin á göngu skammt frá jeppunum þegar þau féllu í sprunguna. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, og björgunarsveitir af Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu héldu þegar upp á jökulinn og voru þar um eitthundrað björgunarmenn að störfum. Þá var önnur þyrla Gæslunnar, TF-EIR, einnig send á svæðið með ljósabúnað en þessar myndir voru teknar þegar hún lenti aftur síðdegis á Reykjavíkurflugvelli.

Síðdegis tókst að ná mæðgininum upp og lenti TF-LÍF með annað þeirra við Borgarspítalann nú undir kvöld. Engar upplýsingar fást um líðan þeirra.




Tengdar fréttir

Tveir féllu í sprungu í Langjökli

Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir hafa verið kallaðar út vegna slyss á Langjökli. Tveir einstaklingar féllu í sprungu en tilkynning um slysið barst rétt fyrir klukkan eitt í dag. Ekki fengust upplýsingar um hvort fólkið sé mikið slasað. Björgunarsveitarmenn fara með þyrlu Gæslunnar á jökulinn.

Björgunaraðgerðum að ljúka á Langjökli

Aðgerð björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem var á Langjökli í dag, þegar kona og barna féllu í sprungu á jöklinum, er að ljúka. Um 120 björgunarsveitamenn af suðvesturhorni landsins tóku þátt í aðgerðinni. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan fólksins.

Önnur þyrla send á Langjökul

Önnur þyrla frá Landhelgisgæslunni er lögð af stað til að taka þátt í björgunaraðgerðunum á Langjökli þar sem barn og kona féllu í sprungu eftir hádegi. Þyrlan lendir á jöklinum innan skamms. Í henni eru tæki og ljósabúnaður sem mun nýtast í aðgerðunum dragist þær langinn.

Þyrlan lent á Langjökli - verið að hífa einn upp

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Langjökli rétt fyrir klukkan tvö en kona og barna féllu í sprungu á vestanverðum jöklinum fyrr í dag. Skömmu fyrir þrjú var verið að hífa annað þeirra upp. Engar fregnir hafa borist af líðan fólksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×