Tamíl Tígrar í íslensku fangelsi Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. febrúar 2010 15:24 Páll Winkel segir fjölbreyttan hóp manna hafi afplánað dóm á Íslandi. Mynd/ GVA.
Fjöldi erlendra ríkisborgara sem afplánar fangelsisdóma í íslenskum fangelsum hefur aukist griðarlega að undanförnu. Af þeim 319 sem afplánuðu dóm í íslenskum fangelsum á Íslandi í fyrra voru 67 útlendingar. Hlutfallið er því um 21%. Árið 2000 afplánuðu hins vegar 313 fangar í íslenskum fangelsum en þá var fjöldi erlendra ríkisborgara 7. Hlutfallið þá var því um 2,2%. Talan tekur til þeirra fanga sem luku afplánun á árinu eða voru í fangelsi í lok þess. Pólverjar og Litháar eru fjölmennasti hópur erlendra ríkisborgara sem eru vistaðir í íslenskum fangelsum. Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir þó að fangarnir komi mun víðar að. „Það er ekki langt síðan að við vorum með Tamil Tígra," segir Páll Winkel. Hann segir að það geti skapað vandamál í sambandi við tjáskipti að vera með svo fjölbreyttan hóp. Margir þessara erlendu fanga tali bara eigið tungumál. Túlkaþjónustan sé dýr en þó ekki stóra upphæðin í öllu samhenginu. Páll telur að helsta ástæðan fyrir þessari aukningu á fjölda erlendra ríkisborgara í íslenskum fangelsum sé aukin alþjóðavæðing og fólk að ferðast á milli landa. „Lögreglan er búin að vera öflug í því að upplýsa stór mál. Síðan náttúrlega hefur þessi gengjamyndun aukið mjög mikið hlut erlendra fanga," segir Páll. Hann bendir á að lögreglan hafi verið að taka pólsk og litháísk gengi fyrir innbrot og líkamsárásir. „Í litlu samfélagi er þetta fljótt að telja," segir Páll.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent