Innlent

Mál Franklíns Stiners tekið fyrir í Héraðsdómi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Franklín Steiner var tvisvar tekinn með fíkniefni. Mynd/ GVA.
Franklín Steiner var tvisvar tekinn með fíkniefni. Mynd/ GVA.
Ákæra á hendur Franklín Stiner verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Franklín, sem betur er þekktur undir nafninu Franklin Steiner, er ákærður fyrir vörslu fíkniefna eins og fréttastofa sagði frá þegar málið var þingfest fyrir dómi síðastliðið haust.

Hann var tekinn með eitt gramm af hassi, 33 grömm af kókaíni og 23 alsælutöflur haustið 2008. Í apríl í fyrra var hann svo aftur tekinn með 23 grömm af amfetamíni, 0,34 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni og tvær alsælutöflur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×