Þurfa að dvelja niðurgrafnir til áramóta - deilt um upplýsingaskyldu Breki Logason skrifar 24. ágúst 2010 19:12
Námuverkamennirnir þrjátíu og þrír frá Chile sem setið hafa fastir í námu síðustu átján daga, sungu þjóðsönginn og þökkuðu björgunarfólki í gær. Það sem þeir vita líklega ekki er að þeir þurfa að dvelja í námunni fram að áramótum. Mennirnir festust inni í námunni eftir að hún hrundi fyrir tæplega þremur vikum en í gær náðist samband við mennina sem allir eru á lífi. 15 cm þykk hola er á milli mannanna, sem eru á 670 metra dýpi, og yfirborðsins og hefur súrefni meðal annars verið komið niður til þeirra ásamt helstu vistum. Þeir hafa síðustu átján daga nærst á mjölk, túnfiski og kexkökum en þeir voru orðnir nokkuð hungraðir þegar samband náðist við þá. Þeir höfðu þó vatn, sem talin er vera meginástæða þess að þeir eru enn á lífi. Til þess að ná mönnunum upp þarf að grafa holu í gegnum bergið, en það gengur hægt og komast menn einungis 20 metra á dag og því mun björgunin taka um fjóra mánuði. Yfirvöld segjast nú vinna með sérfræðingum að því að finna fljótlegri aðferð til þess að ná þeim upp. Mennirnir hafa allir komið skilaboðum til fjölskyldna sinna. Mikill hiti er niðri í námunni en mennirnir hafa allir töluverða reynslu af því að vinna neðanjarðar. Sérfræðingar deila nú um hvort upplýsa eigi mennina um stöðu mála en mennirnir vita ekki að líklega þurfa þeir að dvelja í námunni fram að áramótum. Verði þeir upplýstir um stöðu mála, er það talið geta haft alvarlegar afleiðingar á geðheilsu mannanna.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Sjá meira