Enski boltinn

Cheryl Cole sækir um skilnað

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Hjónaband Ashley og Sheryl Cole er á enda en söngkonan hefur ákveðið að sækja um skilnað. Talsmaður hennar staðfesti þetta í dag.

Fréttirnar koma ekki á óvart enda hefur Cole verið daglegur gestur á síðum slúðurblaðanna síðustu daga þar sem greint hefur verið frá framhjáhaldi hans með fjórum konum.

Ashley og Cheryl, sem er söngkona í hljómsveitinni Girls Aloud og dómari í breska X-Factor, giftu sig árið 2006 og voru eitt helsta stjörnupar Breta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×