Innlent

Samkeppniseftirlitið leitar hjá Íslandspósti

Póstur Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að fylgst hafi verið með póstmarkaði í nokkurn tíma.Fréttablaðið/Arnþór
Póstur Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að fylgst hafi verið með póstmarkaði í nokkurn tíma.Fréttablaðið/Arnþór

Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins gerðu húsleit í höfuðstöðvum Íslandspósts á miðvikudagsmorgun vegna gruns um brot á samkeppnislögum.

„Þetta er liður í rannsókn sem beinist að meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Hann vill ekki upplýsa í hverju meint misnotkun Íslandspósts á að hafa falist, en tekur fram að rannsóknin beinist að fleiri en einu atriði. Samkeppniseftirlitið hafi verið að fylgjast með þessum markaði í nokkurn tíma.

Húsleitin gekk vel og lagt var hald á bæði tölvugögn og pappíra, segir Páll Gunnar. Hann vildi ekki segja til um hvenær niðurstöður úr rannsókn Samkeppniseftirlitsins væru væntanlegar.

„Við teljum að þeir séu að misnota markaðsráðandi stöðu sína í tilboðum í skjóli þess að þeir eru með einkarétt á bréfum upp að 50 grömmum. Við teljum að þeir séu að nýta það kerfi til að niðurgreiða samkeppnisflutning,“ segir Hannes Hannesson, framkvæmdastjóri Pósthússins.

Hann segir Pósthúsið hafa sent nokkrar ábendingar til Samkeppniseftirlitsins vegna atriða sem talið sé að varði við samkeppnislög.

Meðal þess sem kvartað var yfir er túlkun Íslandspósts á samningum um magnflutninga, segir Hannes. „Þeir vildu meina að það sem við værum að senda félli ekki innan þess samnings, og yfir því kvörtuðum við til Samkeppniseftirlitsins þar sem við töldum að þeir væru að mismuna okkur,“ segir Hannes.

Íslandspóstur er meðal annars með einkarétt á dreifingu á bréfum undir 50 grömmum. Íslandspóstur keppir við Pósthúsið, sem dreifir meðal annars Fréttablaðinu, og Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, á öðrum sviðum.

Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins komu í höfuðstöðvar Íslandspósts við opnun á miðvikudagsmorgun, og voru þar við leit fram að hádegi, segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.

„Þeir fengu gögn hjá okkur, en ég veit ekki hversu víðtæk leit þeirra var,“ segir Ingimundur. Hann segist aðspurður ekki telja að fyrirtækið hafi gerst brotlegt við samkeppnislög. brjann@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×