Duffy ætlar ekki að kjósa í bresku þingkosningunum 1. maí 2010 21:00 Duffy og Brown ræða saman.
Gillian Duffy, sem Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, kallaði fordómafulla konu (e. bigoted), ætlar ekki að kjósa í þingkosningunum í næstu viku samkvæmt breska götublaðinu The Daily mail. Málið er allt hið spaugilegasta þrátt fyrir alvarlegan undirtón en sumir telja að þetta smáhneyksli, sem varð risastórt að lokum, verði til þess að Verkamannaflokkurinn missi alla möguleika á að sigra þingkosningar sem haldnar verða í næstu viku. Forsaga málsins er sú að Brown hitti Duffy ásamt fleiri stuðningsmönnum Verkamannaflokksins í síðustu viku. Aðstoðarmenn forsætisráðherrans höfðu búið svo um hnútana að Brown myndu eingöngu ræða við dygga kjósendur flokksins. En Duffy hefur aldrei kosið neitt annað en Verkamannaflokkinn. Í miðju samtali þeirra spyr Dyffy hvað í ósköpunum Brown ætli að gera varðandi innflytjendur frá Austur-Evrópu. Brown varð dálítið brugðið en reyndi að benda henni á að það væri svo sem ekkert sérstakt vandamál með innflytjendur frá Austur-Evrópu, frekar en alla þá Breta sem flytja til annara landa í Evrópu. Brown var með hljóðnema fastan á sér þannig að Sky sjónvarpsstöðin gæti örugglega hljóðritað samtölin, enda var augnablikið eingöngu sýnt í áróðurskyni af hálfu flokksins. Eftir samræðurnar gleymdi Brown hinsvegar að taka af sér hljóðnemann og settist upp í bíl Svo kallaði hann Duffy fordómafulla konu í samtali við aðstoðarmann sinn. Málið hefur þótt hið háðuglegasta. Brown hefur meðal annars farið heim til Duffy og beðið hana persónulega afsökunar. Hún tók við afsökunarbeiðninni. Þær stórfréttir voru að sjálfsögðu kynntar með pompi og prakt í anddyrinu hjá Duffy. Nú heldur málið sem sagt áfram, Brown til mikillar mæðu, því Duffy hefur ákveðið að kjósa ekki neinn flokk í fyrst skiptið á ævi sinni. Í viðtali við Daily Mail segist hún ekki reið. Hún er enn þá dálítið sár út í Brown vegna málsins. En þrátt fyrir að Duffy kjósi ekki þá má vera að þáttur hennar í kosningabaráttunni verði engu að síður það dýrkeyptasta fyrir Brown á síðustu metrunum fyrir kosningarnar.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Sjá meira