Beittu táragasi gegn mótmælendum 1. maí 2010 11:56 Mikið hefur verið um óeirðir í Grikklandi vegna bágs efnahagsástands.
Gríska óeirðalögreglan beitti táragasi á ungmenni í Aþenu í Grikklandi í morgun þegar fyrsta maí gangan þar fór framhjá fjármálaráðuneyti landsins. Þúsundir manna streymdu út á götur Aþenu í morgun og ástandið er sagt viðsjárvert. Einnig eru fregnir af svipuðum átökum milli mótmælenda og lögreglu í borginni Þessalóníku í norðurhluta landsins þar sem ungmenni munu hafa ráðist á fyrirtæki. Þúsundir Grikkja hafa í morgun tekið þátt í kröfugöngum dagsins og mótmælt áætlunum stjórnvalda um harkalegan niðurskurð. Aðgerðirnar eru skilyrði Evrópusambandsins fyrir yfir hundrað milljarða evra björgunarpakka. Gríðarleg andstaða er við niðurskurðinn meðal almennings í Grikklandi en þar búast menn við að laun verði skorin niður, skattar hækkaðir og ellilífeyrir lækkaður. Björgunarpakkinn á að koma í veg fyrir að gríska ríkið fari í þrot vegna óviðráðanlegra skulda. Fréttamaður BBC í Aþenu segir andrúmsloftið í borginni alvarlegt en verkalýðsfélögin sem standa fyrir kröfugöngunum vonast til að mótmælin sýni stjórnvöldum, Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að félögin hafi nægan mannafla til að berja niður fyrirhugaðar niðurskurðaraðgerðir. Könnun frá því í vikunni sýnir að um helmingur grísku þjóðarinnar er reiðubúinn að streyma út á göturnar til að stöðva aðgerðir stjórnvalda. George Papandreou forsætisráðherra Grikklands segir aðgerðirnar nauðsynlegar til að bjarga landinu.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira